Sónata eftir Chopin á Gljúfrasteini

Kristján Karl Bragason, píanó

Þann 14. ágúst glöddust aðdáendur Chopin, því Kristján Karl Bragason kom fram á Gljufrasteini og lék Sónötu nr. 3 í h-moll op. 58 eftir tónskáldið.

Kristján Karl Bragason hóf píanónám hjá Lidiu Kolosowska í Tónlistarskólanum á Dalvík og nam síðar hjá prófessor Marek Podhajski við Tónlistarskólann á Akureyri, þaðan sem hann útskrifaðist árið 2002. Þá lærði hann um þriggja ára skeið hjá Halldóri Haraldssyni við Tónlistarskólann í Reykjavík. Sumarið 2005 var Kristján skiptinemi við Staatliche Hochschule für Musik í Stuttgart hjá prófessor Shoshana Rudiakov. Þá lærði hann í fjögur ár í Frakklandi, hjá Eddu Erlendsdóttur í CNR de Versailles og Pascal Amoyel í CRR de Rueil-Malmaison. Haustið 2009 hóf Kristján mastersnám í Hollandi hjá Katia Veekmans-Cieszkowski og lýkur í haust prófum frá Conservatorium Maastricht. Kristján hefur sótt námskeið og einkatíma hjá ýmsum píanóleikurum, m.a. Peter Máté, Diane Andersen, Jean-Claude Pennetier, Abdel Rahman El-Bacha og Thérèse Dussaut. Kristján hlaut árið 2000 fyrstu verðlaun í framhaldsflokki í fyrstu píanókeppni Íslandsdeildar EPTA. Árin 2008 og 2010 var hann einn af styrkþegum Minningarsjóðs um Birgi Einarson. Haustið 2008 flutti hann ásamt Sinfóníuhljómsveit unga fólksins píanókonsert nr. 1 eftir Brahms og í mars 2010 hélt hann einleikstónleika í TÍBRÁ í Salnum í Kópavogi. Kristján Karl er einn stofnenda og skipuleggjenda Tónlistarhátíðarinnar BERGMÁL á Dalvík.