Opið er á Gljúfrasteini frá 1. nóvember til 1. mars þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag og föstudag frá kl. 10 - 16. Einnig samkvæmt samkomulagi og þegar sérstakir viðburðir eru haldnir.
Frá 1. mars 2022
Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10.00 - 16.00
Á sumrin (1. júní - 31. ágúst)
Opið alla daga frá kl. 10.00 - 17.00.
Aðgangseyrir
Fullorðnir kr. 1200,-
Eftirlaunafólk kr. 1000,-
Námsfólk kr. 1000,-
Öryrkjar, atvinnulausir og börn yngri en 18 ára: ókeypis
Ferðaskipuleggjendur og -skrifstofur fá 10% afslátt frá þessu verði.
Hópar utan opnunartíma
50.000 kr. lágmarksgjald (15 manns).
2.000 kr. fyrir hvern umfram 15.
Félagar í FÍSOS, ICOM og Vinafélagi Gljúfrasteins greiða ekki aðgangseyri að safninu.
Skólahópar á öllum skólastigum, í skipulagðri skólaheimsókn, greiða ekki aðgangseyri.
Boðið er upp á hljóðleiðsögn um húsið sem er á íslensku, ensku, dönsku, þýsku eða sænsku þar má m.a. heyra raddir Auðar og Halldórs Laxness. Hægt er að fá textaleiðsögn um húsið á frönsku. Ennfremur er hægt að óska eftir leiðsögn fyrirfram á öðrum tungumálum með starfsmönnum hússins.
Í móttökuhúsinu er hægt að bóka í skoðunarferðir en gestum er ráðlagt að bóka fyrirfram með því að senda tölvupóst á gljufrasteinn [hjá] gljufrasteinn.is eða hringja í síma 586-8066.
Hljóðleiðsögn.