Stofutónleikaröð 2021

10. október 2021
Þá fluttuTómas R. Einarsson og Ragnhildur Gísladóttir lög  af plötunni Ávarp undan sænginni. Með þeim spiluðu Ómar Guðjónsson á gítar og Davíð Þór Jónsson á píanó. Á þessari nýju plötu eru tíu lög við kvæði íslenskra skálda og eru helstu umfjöllunarefnin, ást og söknuður. Tvö lög eru þar við ljóð eftir Halldór Laxness; Þú kysstir mína hönd og Stríðið ort í orðastað Bjarts í Sumarhúsum. Titill plötunnar er sóttur í ljóð Kristínar Svövu Tómasdóttur, Ávarp undan sænginni (Blótgælur, 2007) 

17. október 2021

Flautuhópurinn Viibra flutti verk eftir Þuríði Jónsdóttur, Björk Guðmundsdóttur, Berglindi Maríu Tómasdóttur, Hilmu Kristínu Sveinsdóttur og Pauline Oliveros. Hópurinn hefur unnið náið saman við gerð plötu Bjarkar Guðmundsdóttur, Útópíu og á ýmsum tónleikaferðalögum í kjölfarið. Á efnisskránni verða tveir frumflutningar, nýjar útsetningar og önnur verk fyrir flautuhópa. Meðlimir viibru eru: Áshildur Haraldsdóttir, Berglind María Tómasdóttir, Björg Brjánsdóttir, Dagný Marinósdóttir, Melkorka Ólafsdóttir, Sólveig Magnúsdóttir, Steinunn Vala Pálsdóttir og Þuríður Jónsdóttir. 

24.október 2021

Kiljan skrifar, Kjarval málar var heiti á dagskrá Kristins Sigmundssonar, óperusöngvara og Helgu Bryndísar Magnúsdóttur, píanóleikara. Flutt voru verk eftir Hauk Tómasson, Franz Schubert, Karl O. Runólfsson, Jón Ásgeirsson, Eyþór Stefánsson, Markús Kristjánsson, Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Robert Schumann.

31. október 2021

Bassaleikarinn og tónskáldið Ingibjörg Elsa Turchi og hljómsveit hennar spila á Gljúfrasteini. Ingibjörg Elsa hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu ár og komið fram með mörgu af ástsælasta tónlistarfólki þjóðarinnar, meðal annarra, Emilíönu Torrini, Bubba Morthens, Teiti Magnússyni og Stuðmönnum. Ingibjörg Elsa hefur einnig samið verk fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands en það var frumflutt í apríl síðastliðnum á vegum Ung-Yrkju sem er verkefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Tónverkamiðstöðvar. Þar að auki kemur Ingibjörg Elsa reglulega fram undir eigin nafni þar sem hún kannar hljóðheim rafmagnsbassans sem er hennar aðalhljóðfæri. Ingibjörg Elsa var tilnefnd til sex verðlauna á Íslensku tónlistarverðlaununum 2021 og hlaut þrenn verðlaun. Með Ingibjörgu Elsu á tónleikunum á Gljúfrasteini verða Tumi Árnason sem leikur á saxófón, Magnús Tryggvason Eliassen sem leikur á trommur, Hróðmar Sigurðsson sem leikur á gítar og Magnús Jóhann Ragnarsson sem leikur á píanó.  

7. nóvember 2021

Hallveig Rúnarsdóttir, óperusöngkona og Árni Heimir Ingólfsson, píanóleikari slá lokatóninn á stofutónleikum Gljúfrasteins árið 2021. Tónleikar þeirra fara fram sunnudaginn 7. nóvember. Þau ætla að flytja Laxnesslög Atla Heimis Sveinssonar auk laga eftir Stephen Sondheim og Francis Poulenc.  Hér má hlýða á Hallveigu og Árna Heimi flytja Les Chemins de l'amour eftir Francis Poulenc í stofu skáldsins.  Ákveðið var að taka upp eitt lag sumarið 2021 til að koma til móts við þyrsta tónleikagesti þegar safnið var lokað vegna heimsfaraldurs.