Atómstöðin
Í túninu heima
Paradísarheimt
Brekkukotsannáll
Gerpla
Guðsgjafarþula: Sögulok
Innansveitarkronika
Kristnihald undir Jökli
Halldór Laxness: Hernaðurinn gegn landinu
Halldór Laxness flytur ræðu 1. desember 1955
Halldór Laxness les ljóð íslenskra skálda
Passíusálmar: Halldór Laxness les
Halldór Laxness les kafla úr eigin verkum: Upphaf mannúðarstefnu, seinni hluti
Halldór Laxness les eigin ljóð og ljóðaþýðingar
Halldór Laxness: Birtíngur
Upplestur skáldsins
Allir upplestrar Halldórs Laxness sem varðveittir eru í safni RÚV eru aðgengilegir í spilara RÚV á netinu. Þar er einnig að finna töluvert af viðtölum við skáldið.
Meðal bóka sem nú er hægt að hlusta á nóbelskáldið lesa í spilara RÚV eru Gerpla, Brekkukotsannáll, Í túninu heima, Paradísarheimt, Kristnihald undir Jökli, Atómstöðin, Innansveitarkronika og grein Halldórs Hernaðurinn gegn landinu. Einnig má hlýða á Halldór lesa eigin ljóð og ljóðaþýðingar, Passíusálmana og Birtíng eftir Voltaire í þýðingu skáldsins.
Upplestrarnir voru gerðir aðgengilegir í tilefni af 90 ára afmæli RÚV í samstarfi við dætur skáldsins, Guðnýju Halldórsdóttur og Sigríði Halldórsdóttur.
Hér fyrir neðan er listi yfir upplestra skáldsins.