Birna Stefáns, Vigdís Gríms, Kristín Ómars og Vilborg Davíðs lesa
12/12 2023
Á aðventunni lesa höfundar upp úr verkum sínum í stofunni á Gljúfrasteini. Upplestrar fara fram fjóra sunnudaga fyrir jól enda er fátt notalegra í skammdeginu en að hlýða á góðar bókmenntir.
Nú er komið að síðasta upplestrinum, en sunnudaginn 17. desember munu eftirtaldir höfundar lesa upp úr verkum sínum:
Birna Stefánsdóttir - Örverpi
Kristín Ómarsdóttir - Móðurást: Oddný
Vigdís Grímsdóttir - Ævintýrið
Vilborg Davíðsdóttir - Land næturinnar
Dagskráin hefst kl. 15 og stendur í um klukkustund. Frítt er inn á viðburðinn. Öll hjartanlega velkomin, sjáumst á Gljúfrasteini.
Hér má sjá dagskrá aðventuupplestranna í heild sinni.
_800_450.png)
Birna Stefánsdóttir, Vigdís Grímsdóttir, Kristín Ómarsdóttir og Vilborg Davíðsdóttir.