Upplestur 4. desember: Ljósagangur, Kákasusgerillinn, Máltaka á stríðstímum og Þetta rauða, það er ástin 

Dagur, Ragna, Jónas Reynir og Natasha lesa upp á Gljúfrasteini sunnudaginn 4. desember.

Á aðventunni lesa höfundar upp úr nýjum bókum á Gljúfrasteini. Jólabókaflóðið er aldeilis spennandi í ár og Gljúfrasteinn fer ekki varhluta af því. Annan sunnudag í aðventu, þann 4. desember, munu eftirtaldir höfundar lesa upp úr verkum sínum:

Dagur Hjartarson - Ljósagangur 
Jónas Reynir Gunnarsson - Kákasusgerillinn 
Natasha S. - Máltaka á stríðstímum 
Ragna Sigurðardóttir - Þetta rauða, það er ástin 

Upplestrar fara fram á hverjum sunnudegi á aðventunni klukkan 15. Dagskráin stendur í klukkutíma. Aðgangur er ókeypis og öll innilega velkomin.

Njótum aðventunnar á Gljúfrasteini.

 

Til baka í viðburði