Fylliraftarnir

Sjálfsagðir hlutir 1946

Fátt fór meira í taugarnar á Halldóri Laxness en drukkið fólk og þreyttist hann ekki að vekja athygli á því vandamáli Íslendinga að geta ekki umgengist áfengi eins og aðrar þjóðir. Árið 1945 ritaði hann grein sem nefnist „Fylliraftarnir“ og síðar var prentuð í Sjálfsögðum hlutum.

Þar segir: „Íslenski fyllirafturinn er skrímsli sem tilheyrir sérstökum kapítula náttúrufræðinnar, enn óskrifuðum. Sú fullnaðaruppgjöf og fótumtroðsla mannlegs virðuleiks sem einkennir venjulegan íslendíng undir áhrifum áfeingis er óhugsanleg meðal siðaðra manna. Áfeingisneysla á hvert höfuð er meiri í mörgum löndum en á Íslandi, og lángmest í flestum þeim löndum þar sem drukkinn maður á almannafæri má heita óþekt fyrirbrigði. Íslendíngar nota áfeingi afturámóti alt öðruvísi en aðrir menn. Orsökin til þess hve ölæðíngar trana sér fram í bæarlífinu hér er ekki sú að drykkjuvísitala okkar sé svo há í samanburði við ýmsar aðrar þjóðir, heldur hin, hve lítt siðaðir við erum, hve grunt er í okkur ofaná hinn frumstæða siðlausa barbara: hann er kominn upp í okkur óðar en við finnum lykt af brennivíni; við þolum ekki áfeingi. Þessi eilífu drykkjuærsl í íslendíngum ef þeir þefa af áfeingi eru tákn hins sama skorts á mannasiðum sem einkennir íslenskt þjóðfélag yfirleitt og meðal annars birtist í tóni íslenskrar blaðamennsku, framkomu æskulýðsins á götunum, vanmentun okkar til flestra verka nema þeirra sem mæld verða í pundfetum, eins og draga fisk; getuleysis mikils hluta þjóðarinnar til að tjá hugsanir sínar og tilfinníngar öðruvísi en með blótsyrðum. Það þarf siðmenníngu til að geta umgeingist áfeingi. Þegar aðrir menn neyta áfeingis sér til skemtunar eða einsog krydds með mat sínum, eða til að heilsa gesti og góðvini, má undantekníngarlítið fullyrða að íslendíngar neyti áfeingis sér til leiðinda og kvalræðis.“