Á aðventunni munu höfundar lesa upp úr verkum sínum í stofunni á Gljúfrasteini. Upplestrar fara fram fjóra sunnudaga fyrir jól enda er fátt notalegra í skammdeginu en að hlýða á góðar bókmenntir.
Sunnudaginn 26. nóvember munu eftirtaldir höfundar lesa upp úr verkum sínum:
Bergþóra Snæbjörnsdóttir - Duft
Bragi Páll Sigurðarson - Kjöt
Friðgeir Einarsson - Serótónínendurupptökuhemlar
Gyrðir Elíasson - Dulstirni / Meðan glerið sefur
Dagskráin hefst kl. 15 og stendur í um klukkustund. Frítt er inn á viðburðinn. Öll hjartanlega velkomin, sjáumst á Gljúfrasteini.
Hér má sjá dagskrá aðventuupplestranna í heild sinni.