Sjömeistarasagan kom út árið 1978 og er þriðja bindi minningasagna Halldórs Laxness.Hinar eru Í túninu heima (1975), Úngur eg var (1976) og Grikklandsárið (1980). Sagan gerist í Reykjavík í lok fyrri heimsstyrjaldarinnar og fjallar um Halldór og samferðamenn hans. Hér segir frá ungum manni sem bíður í ofvæni þess að glíma við að setja saman meistaraverk á bókmenntasviðinu. Bókin er ekki síður mikilvægur vitnisburður mikils höfundar um menningarsögu Íslands og umheimsins á öldinni sem leið.
1978