Varmárkórinn syngur í stofunni á sumardaginn fyrsta
23/04 2026Varmárkórinn syngur valin lög í stofunni á Gljúfrasteini á sumardaginn fyrsta, 23. apríl klukkan 15.
Sungin verða íslensk lög, mörg hver með textum eftir Halldór Laxness.
Kórinn var stofnaður árið 2019 og er aðallega skipaður fyrrverandi félögum Skólakórs Varmárskóla.
Markmið kórsins er að syngja saman í góðum félagsskap og vera stuðningur við kórstarfið í Varmárskóla auk þess að vera með eigin tónleika eða í samvinnu við aðra.
Stjórnandi er Guðmundur Ómar Óskarsson.
Frítt inn og öll velkomin.
Við bendum á bílastæðin við Jónstótt, því bílastæðin við Gljúfrastein eru fljót að fyllast.
Varmárkórinn