Upplestur 11. desember: Saknaðarilmur, Útsýni, Guli kafbáturinn og Tól

Kristín Eiríksdóttir, Guðrún Eva Mínervudóttir, Jón Kalman og Elísabet Jökulsdóttir lesa upp á Gljúfrasteini sunnudaginn 11. desember.

Á aðventunni lesa höfundar upp úr nýjum bókum á Gljúfrasteini. Jólabókaflóðið er aldeilis spennandi í ár og Gljúfrasteinn fer ekki varhluta af því. Þriðja sunnudag í aðventu, þann 11. desember, munu eftirtaldir höfundar lesa upp úr verkum sínum:

 

Elísabet Jökulsdóttir - Saknaðarilmur
Guðrún Eva Mínervudóttir - Útsýni
Jón Kalman - Guli kafbáturinn
Kristín Eiríksdóttir - Tól

 

Upplestrar fara fram á hverjum sunnudegi á aðventunni klukkan 15. Dagskráin stendur í klukkutíma. Aðgangur er ókeypis og öll innilega velkomin.

 

Njótum aðventunnar á Gljúfrasteini.


 

Til baka í viðburði