Kristinn Árnason spilaði á gítar á stofutónleikum Gljúfrasteins sunnudaginn 4. júlí 2010. Efnisskráin var fjölbreytt og spannaði tónverk frá 16. til 21. aldarinnar. Tónverk voru leikin eftir Luis Milan, Giovanni Kapsberger, Johann Sebastian Bach, Manuel de Falla, Isaac Albeniz og eftir Kristinn sjálfan.
Kristinn Árnason lauk burtfararprófi frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar árið 1983. Hann stundaði framhaldsnám í Bandaríkjunum, Englandi og Spáni. Kristinn hefur haldið fjölda tónleika í Reykjavík, á landsbyggðinni auk tónleika á Ítalíu, Bandaríkjunum, Noregi, Danmörku, Englandi og Hollandi. Hann hefur hljóðritað fyrir útvarp og sjónvarp, leikið kammertónlist af ýmsu tagi og þegið starfslaun listamannna frá Íslenska ríkinu.
Nokkrir geisladiskar hafa komið út með gítarleik hans, geisladiskur hans með verkum eftir Sor og Ponce hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 1997 í flokki klassískra hljómdiska. Árið 2007 hlaut Kristinn verðlaun úr minningarsjóði Kristjáns Eldjárns og hann hefur að auki hlotið tilnefningu til menningarverðlauna DV.
Efnisskrá:
Luis Milan (1500-1551): Þrír Pavanar
Giovanni Kapsberger (1580-1651): Toccata Arpeggiata
Johann Sebastian Bach (1685-1750): Fuga í a-moll BWV 1000
Kristinn Árnason (1963): Næturljóð (2009)
Manuel de Falla (1876-1946):
Danza del Corregidor
Homenaje”Le Tombeau de Debussy”
Danza del Molinero
Isaac Albeniz (1860-1909): Asturias