Sjálfstætt fólk 90 ára - afmælisganga að Helgufossi

Nú drögum við Sjálfstætt fólk fram úr hillunum og fögnum því að 90 ár eru liðin frá því að fyrri hluti þessarar stórkostlegu bókar kom út. Sjálfstætt fólk kom út á árunum 1934-35. Safnið á Gljúfrasteini fagnar einnig 20 ára afmæli um þessar mundir. Af þessu tilefni verður efnt til skáldagöngu, sunnudaginn 8. september, kl. 14:00. 

Gengið verður frá Gljúfrasteini upp að Helgufossi með Bjarka Bjarnasyni göngustjóra í fararbroddi. Rithöfundarnir Gerður Kristný, Kristín Svava Tómasdóttir og Pétur Gunnarsson munu lesa sérvalda kafla upp úr Sjálfstæðu fólki. Við Helgufoss bíða göngufólki léttar kaffiveitingar og meðlæti. 

Gangan hefst stundvíslega kl. 14:00 og gengið verður frá Gljúfrasteini. Göngufólk er hvatt til að mæta í viðeigandi skóbúnaði og hlífðarfatnaði í takt við veðurspá. Gott er að gera ráð fyrir rúmri klukkustundar göngu hvora leið.

Við bendum göngufólki á að næg bílastæði eru við Jónstótt.  

Öll velkomin! 

Til baka í viðburði