Magnús Jóhann og Óskar Guðjónsson flytja nýtt efni

Magnús Jóhann og Óskar Guðjónsson munu halda uppi góðri stemningu á Gljúfrasteini þann 28. júlí næstkomandi.

Píanóleikarinn Magnús Jóhann og saxófónleikarinn Óskar Guðjónsson leiða saman hesta sína á Gljúfrasteini þann 28. júlí nk. til þess að flytja glænýtt efni úr þeirra smiðju. Þeir hljóðrituðu nýverið hljómplötu með tónsmíðum þeirra beggja. Sú plata lítur dagsins ljós í september en þeir hlakka mikið til að flytja hluta efnisins á Gljúfrasteini. Þann 19. júlí sl. kom út fyrsta smáskífan af plötunni, Tilfinningatöffarinn, en lagið semur Magnús.    
 
Frá unglingsárum hefur Óskar Guðjónsson verið eftirsóttur saxófónleikari í íslensku tónlistarstórfjölskyldunni. Spunatónlist, djass, stendur hjarta hans næst. Á þeim vettvangi hefur hljómsveit hans ADHD vakið verðskuldaða athygli innan og utan landsteinanna. Óskar hefur einnig starfað með ógrynni listafólks en þar má t.a.m. nefna Mezzoforte, Tómas R Einarsson, Jim Black, Aaron Parks og Ásgeir Trausta svo nokkur dæmi séu tekin. Samstarf Óskars og Skúla Sverrissonar, bassaleikara og tónskálds, hefur einnig verið gæfuríkt og galopnað augu og eyru Óskars fyrir fleiri möguleikum jazztónlistar. Afraksturinn er tvær plötur og ótal tónleikar.  
 
Magnús Jóhann Ragnarsson hefur frá árinu 2015 hefur verið mjög virkur sem tónlistarflytjandi, tónskáld og upptökustjóri en hann hefur leikið inn á hundruði hljóðrita og kemur fram á fjölmörgum tónleikum á ári hverju. Moses Hightower, Bríet, Ingibjörg Turchi, Aron Can og Bubbi Morthens eru dæmi um samstarfsaðila hans en sjálfur hefur Magnús gefið út fjórar sólóplötur og eina stuttskífu. Auk þeirra gaf hann út dúóplöturnar Án tillits 2021, með Skúla Sverrissyni og Tíu íslensk sönglög 2022, með GDRN. Magnús var valinn tónlistarflytjandi ársins í opnum flokki á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2023. 
 
Tónleikarnir hefjast kl. 16 í stofunni á Gljúfrasteini. Aðgangseyrir er 3.500 kr. og miðasala fer fram í móttöku safnsins fyrir tónleika. Við bendum gestum á að næg bílastæði eru við Jónstótt.  

Stofutónleikaröð Gljúfrasteins 2024 er haldin í samstarfi við Vinafélag Gljúfrasteins. Stofutónleikar eru haldnir alla sunnudaga á sumrin.
 

Til baka í viðburði