
Í móttökuhúsinu á Gljúfrasteini má finna minjagripabúð safnsins en þar kennir ýmissa grasa. Meðal annars má þar finna helstu verk Halldórs á íslensku, ensku og þýsku. Til viðbótar við bækur Halldórs má líka finna ævisögur og umfjöllunarefni um hann og verk hans. Það eru þó ekki bara bækur sem eru til sölu í safnbúðinni því þar má líka kaupa plaköt, póstkort, bókamerki og blýanta merkta safninu. Þá eru til minnisbækur með munstrinu fræga sem prýddi flestar bækur Halldórs á íslensku og stuttermabolir með tilvitnun í Kristnihald undir Jökli auk annarra minjagripa.