Upplestrar­maraþon úr Íslands­klukkunni

20.05 2026

Síðustu helgina í maí fögnum við 80 ára útgáfuafmæli Íslandsklukkunnar á Gljúfrasteini og efnum til upplestrarmaraþons þar sem verkið verður lesið frá upphafi til enda. Upplestur hefst klukkan tíu að morgni bæði laugardaginn 30. og sunnudaginn 31. maí og stendur allan daginn. Gert er ráð fyrir að báða daga hefjist lokalestur klukkan 20.

Þetta er í fyrsta sinn sem Íslandsklukkan er lesin upp í heild sinni með þessum hætti og höfum við fengið einvalalið leikara og annars listafólks til að koma og lesa upp úr verkinu. Aðgangur er ókeypis, kaffi og meðlæti verður til sölu og einnig verður bókamarkaður í móttöku safnsins þar sem hægt verður að kaupa nýjar og gamlar bækur eftir og um skáldið á íslensku og fleiri tungumálum. 

Frítt er inn á upplestrana.  

Upplestrardagskráin er eftirfarandi:  

Laugardagur 30. maí 
10:00 Sólveig Arnarsdóttir, leikkona  
11:00 Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona 
12:00  Björn Thors, leikari 
13:00 Bjarni Jónsson, leikari  
14:00 Kristín Eysteinsdóttir, leikstjóri og rektor LHÍ 
15:00 Edda Arnljótsdóttir, leikkona 
16:00 Ingvar E. Sigurðsson, leikari 
17:00 Una Torfadóttir, tónlistarkona 
18:00 Friðgeir Einarsson, leikari, leikstjóri og rithöfundur 
19:00 Sigríður Láretta Jónsdóttir, leikkona 
20:00 Kristín Ómarsdóttir, rithöfundur 

Sunnudagur 31. maí 
10:00 Pétur Gunnarsson, rithöfundur 
11:00 Haraldur Ari Stefánsson, leikari 
12:00 Halldór Laxness Halldórsson (Dóri DNA) 
13:00 Katla Margrét Þorgeirsdóttir, leikkona 
14:00 Margrét Vilhjálmsdóttir, leikkona 
15:00 Erling Jóhannesson, leikari og gullsmiður 
16:00 Þorsteinn Bachmann, leikari 
17:00 Guðrún Gísladóttir, leikkona 
18:00 Harpa Arnardóttir, leikkona 
19:00 Jökull Jónsson, nemi 
20:00 Arnar Dan Kristjánsson, leikari  

Verið hjartanlega velkomin!

Íslandsklukkan 1943