Ást og tangó í húminu

30/07 2013

Tónlistarhjónin Kristjana Arngrímsdóttir og Kristján Eldjárn Hjartarson koma í heimsókn á Gljúfrastein þann 4. ágúst næstkomandi og halda stofutónleika. Þau munu leika lög úr ýmsum áttum auk laga af sólóplötum Kristjönu sem bera  titlana Þvílík er ástin, Í húminu og Tangó fyrir lífið.

Tónleikarnir hefjast kl. 16.00 og aðgangseyrir eru 1000 krónur. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Hjónin Kristjana Arngrímsdóttir og Kristján E. Hjartarson hafa um langan tíma tekið þátt í tónlistarlífi í sinni heimabyggð, Dalvíkurbyggð. Kristján tileinkaði sér snemma vísnasöng af Skandinavískri fyrirmynd og kom fram sem trúbador víða um land. Kristjana fór snemma að syngja í kórum og á leiksviði en hún tók virkan þátt í starfi Leikfélags Dalvíkur. Þar lágu leiðir þeirra Kristjáns og Kristjönu saman í fleiri en einum skilningi og upphófst samleikur tónlistarlegt samstarf fyrir alvöru.

Seinna stofnuðu þau Tjarnarkvartettinn ásamt þeim Hjörleifi Hjartarsyni og Rósu Kristínu Baldursdóttur. Tjarnarkvartettinn starfaði óslitið í á annan áratug, og söng víða um land og víða í evrópu.

Kristjana gaf út sinn fyrsta sólódisk, "Þvílík er ástin", árið 2000 og það sama ár fluttu þau hjón til Danmerkur  og bjuggu þar í fimm ár. Á þeim tíma ferðuðust þau vítt um danaveldi og víðar og fluttu tónlist sína við ólík tækifæri. Eftir heimkomuna til Íslands aftur 2005 gaf Kristjana út annan hljómdisk, "Í húminu", þar sem hún flytur íslensk og dönsk vísnalög, þjóðlög og sálma. 2011 gaf Kristjana svo út hljómndiskinn "Tangó fyrir lífið"
Nú koma þau hingað og flytja lög og texta úr ýmsum áttum frá ýmsum tímum en einnig lög af diskum Kristjönu.

Hér má finna dagskrá stofutónleikanna fyrir sumarið 2013