Nóbelsverðlaunin 70 ára
29.10 2025
Í tilefni af því að um þessar mundir eru 70 ár síðan Halldór Laxness hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1955 verður haldið málþing í Norræna húsinu fimmtudaginn 6. nóvember næstkomandi. Dagskráin hefst kl. 16 en áður en málþingið er sett mun Louise Calais, sendiherra Svíþjóðar á Íslandi, opna sýningu um Nóbelsverðlaunin í anddyri Norræna hússins sem mun standa til 23. nóvember.
Á þinginu verða erindi og umræður um Halldór Laxness og verk hans, áhrif hans sem höfundar og erindi hans við nútímalesendur.
Dagskrá þingsins er eftirfarandi:
· Salka - ástin og dauðinn
Halldór Guðmundsson rithöfundur ræðir við Unni Ösp Stefánsdóttur leikskáld og leikkonu um nýtt verk hennar byggt á skáldsögunni Sölku Völku. Unnur mun síðan flytja sýnishorn úr verkinu.
· Excellence from the Outskirts: What a Difference a Nobel Prize Can Make
Mads Rosendahl Thomsen, prófessor í bókmenntum við Árósaháskóla og sérfræðingur í kerfi heimsbókmenntanna.
· Jökullinn stendur opinn: Um lestur ungs fólks á verkum Halldórs Laxness í ljósi Kristnihalds undir Jökli
Anna Rós Árnadóttir bókmenntafræðingur og ljóðskáld.
Kynnir er Halldór Laxness Halldórsson.
Dagskráin fer öll fram á íslensku fyrir utan fyrirlestur Mads Rosendahl Thomsen sem flytur erindi sitt á ensku.
Að málþinginu standa Sendiráð Svíþjóðar á Íslandi, Gljúfrasteinn, Forlagið, Reykjavík Literary Agency, Bókmennta- og listfræðistofnun Háskóla Íslands og Norræna húsið.
Boðið verður upp á léttar veitingar og eru öll velkomin.
Hér má sjá viðburðinn á facebook.
Halldór Laxness tekur við Nóbelsverðlaununum úr hendi Gústavs Adolfs VI. Svíakonungs í Stokkhólmi 1955.