Námskeið: Salka Valka - níræð og síung

27/06 2022

Bókakápur Sölku Völku í móttöku Gljúfrasteins. 

Í október verður þetta spennandi námskeið um Sölku Völku haldið í Endurmenntun: Salka Valka - níræð og síung. Námskeiðið er haldið í samstarfi við Gljúfrastein og mun síðasti tíminn fara fram hér á safninu. Halldór Guðmundsson hefur umsjón með námskeiðinu og fær til sín góða gesti.  

90 ár eru liðin frá því að seinna bindi Sölku Völku, Fuglinn í fjörunni, kom út á þrítugsafmæli Halldórs Laxness. Fjallað verður um sögulegan jafnt sem ævisögulegan bakgrunn verksins, um byggingu þess og persónu- og samfélagslýsingar en líka spurt hvaða erindi sagan eigi við nútímann. Þetta er því einstakt tækifæri til að sökkva sér í heim Sölku Völku. 

Snemmskráning stendur yfir hjá Endurmenntun til og með 23. september.