Myndlist, ljóð og skáldverk á síðasta aðventuupplestri ársins

15/12 2015

Dóri DNA les upp úr ljóðabók sinni Hugmyndir: Andvirði hundrað milljónir – Lítil atvik, mikil eftirmál, í desember 2015.

Senn líður að jólum og því komið að síðasta aðventuupplestri ársins. Skemmtileg stemning myndaðist á síðasta upplestri. Næsta sunnudag, 20. desember munu fjórir rithöfundar lesa upp úr bókum sínum.

Kristín Svava Tómasdóttir  les upp úr ljóðabók sinni Stormviðvörun. Bókin er þriðja ljóðabók hennar.
Óskar Árni Óskarsson les úr Blýenglinum. Titillinn á bókinni og samnefndu ljóði í henni, varð til eftir að höfundur var á gangi eftir Meistaravöllum eitt rigningarsíðdegi um haust og fann þá lítinn blýengil á gangstéttinni. 
Ólafur Ingi Jónsson les úr bókinni Nína Tryggvadóttir - Ljóðvarp. Bókin er gefin út í tengslum við yfirlitssýningu á verkum Nínu Tryggvadóttur í Listasafni Íslands. Í bókinni er farið yfir feril Nínu, lífi hennar og list en hún var meðal frjóustu og framsæknustu myndlistarmanna sinnar kynslóðar og einn af brautryðjendum ljóðrænnar abstraktlistar. Bókina prýðir fjöldi ljósmynda af verkum Nínu, greinar og viðtöl. Ritstjórar bókarinnar eru Birta Guðjónsdóttir og Ólafur Ingi Jónsson. Eins og mörgum er kunnugt þá voru Auður Laxness og Nína miklar vinkonur og mörg verk eftir Nínu prýða Gljúfrastein.
Ólafur Gunnarsson les úr skáldsögu sinni Syndaranum. Bókin er fjölskyldusaga sem gerist á seinustu áratugum síðustu aldar og er sjálfstætt framhald Málarans sem kom út árið 2012.

Upplesturinn hefst stundvíslega klukkan 16.00 og er aðgangur ókeypis.