Innansveitarkronika í flutningi höfundar hefst í kvöld 28. júní á RÚV

28/06 2012

Sagan af brauðinu dýra birtist upphaflega árið 1970 í minningarbók Halldórs Innansveitarkróniku. Hún var síðan gefin út aftur árið 1987 í tilefni af 85 ára afmæli Halldórs, myndskreytt af Snorra Sveini Friðrikssyni. Þetta er blaðsíða úr handriti Halldórs að sögunni.

Innansveitarkronika greinir einkum frá atburðum í Mosfellssveit á seinni hluta nítjándu aldar. Þeir snúast um það að yfirvöld vilja leggja niður kirkju á Mosfelli þar sem haus Egils Skallagrímssonar er grafinn. En bændur í sveitinni una því ekki og tekst að bjarga klukku kirkjunnar og geyma í fjóshaug uns að því kemur löngu síðar að Mosfellskirkja rís á ný til fyrri vegsemdar fyrir tilverknað fóstursonarins á Hrísbrú, Stefáns Þorlákssonar. Inn í þessa frásögn fléttast saga Guðrúnar Jónsdóttur af því er hún villtist á Mosfellsheiðinni með brauðið dýra. Hún lá úti nokkra sólarhringa en brauðið lét hún ósnert.
Sem fyrr segir hefst lesturinn í kvöld 28. júní kl. 21:30 og er á dagskrá næstu 9 virka daga. Þessar upptökur voru fyrst fluttar 1979 í útvarpinu.