Mikill gestagangur hefur verið á Gljúfrasteini í allt sumar. Opið hefur verið alla daga en frá og með 1. september breytist opnunartími safnsins.
Gljúfrasteinn er opinn frá klukkan 10-17 alla daga nema mánudaga yfir vetrarmánuðina. Stofutónleikaröð Gljúfrasteins lauk 29. ágúst þegar Ástríður Alda Sigurðardóttir flutti verk eftir Chopin á flygilinn í stofunni. Þetta var fimmta tónleikaröðin á Gljúfrasteini en tónleikar hafa verið alla sunnudaga í júní, júlí og ágúst.
Eins og undanfarin ár fer Verk mánaðarins af stað með haustinu. Síðasta sunnudag mánaðarins í september, október og nóvember fáum við góða gesti í stofuspjall á Gljúfrasteini.