Frítt inn á sumardaginn fyrsta

21.04 2026

Sumarið er á næsta leiti. Af því tilefni verður frítt inn á safnið á afmælisdegi Halldórs Laxness, fimmtudaginn 23. apríl.

Klukkan 15 mætir Varmárkórinn og syngur valin lög í stofunni. Sungin verða íslensk lög, mörg hver með textum eftir Halldór Laxness.

Hlökkum til  að sjá sem flesta. Öll velkomin.

Gott er að leggja bílum við Jónstótt, því bílastæðin við Gljúfrastein eru fljót að fyllast. 

Gljúfrasteinn á sumardegi