Djasstríó Sunnu Gunnlaugs á fyrstu stofutónleikum sumarsins
Á fyrstu stofutónleikum sumarsins, næstkomandi sunnudag, mun djasstríó Sunnu Gunnlaugs trylla gesti. Tríóið er skipað Sunnu Gunnlaugs á píanó, Þorgrími Jónssyni á kontrabassa og Scott McLemore á trommur.
Tríó Sunnu Gunnlaugs er á leið í tónleikaför vítt og breitt um Bandaríkin í júní til að fylgja eftir plötunni "Long Pair Bond". Eftir útgáfu plötunnar á London Jazzhátíðinni í nóvember s.l. hefur hún fengið glimrandi dóma um víða veröld og þar með talið 5 stjörnur í Austurríki, verið diskur mánaðarins í Japan og fengið 4.5 stjörnur hjá Emusic. Á efnisskránni á Gljúfrasteini verður efni af plötunni "Long Pair Bond".
Tónleikarnir hefjast klukkan 16 og er aðgangseyrir 1.000 krónur.
Heildardagskrá stofutónleika sumarsins má sjá á heimasíðu Gljúfrasteins.