Auður Sveinsdóttir ásamt yngri systrum sínum Ásdísi og Fríðu.
Auður Sveinsdóttir. Myndin er líklegast tekin einhvern tímann á tímabilinu 1936-1938.
Auður Sveinsdóttir við störf á röntgendeild Landspítalans en þar vann hún sem einkaritari og röntgentæknir eftir að gagnfræðanámi lauk. Fyrstu árin eftir að hún og Halldór Laxness giftu sig (1945) hélt hún áfram að vinna á Landspítalanum.
Auður og Halldór Laxness við Golden Gate brúna í San Fransisco
Auður Laxness spariklædd á Gljúfrasteini.
Auður og Halldór við opnun Þjóðleikhússins árið 1950.
Halldór og Auður Laxness í Stokkhólmi 1955.
Auður les fyrir Sigríði dóttur sína í stofunni á Gljúfrasteini.
Auður, Halldór og dætur þeirra Sigríður og Guðný.
Auður við eldavélina á Fálkagötunni en Halldór fylgist með.
Auður og Halldór Laxness ásamt barnabörnum árið 1984.
Carl Gustav Svíakonungur kom í heimsókn á Gljúfrastein árið 2004 ásamt konu og dóttur. Á myndinni má sjá Carl Gustav, Silviu drottningu, Viktoriu dóttur þeirra, Halldóru Lenu og Ara Klæng barnabörn Auðar, Sigríði Halldórssdóttur eldri dóttur hennar og Auði sjálfa.