Bréfasafn Halldórs Laxness er mikið að vöxtum og er stór hluti þess varðveittur í Þjóðarbókhlöðunni. Í sendibréfum ræðir hann opinskátt um verk sem hann vinnur að, er persónulegri en í öðrum skrifum sínum og veita bréfin þannig einstaka innsýn í það sem leitaði á huga Halldórs á hverjum tíma.
Hér er hægt að lesa nokkur bréf sem Halldór skrifaði vinum og ættingjum. Til þess að nálgast þessi bréf, smellið á krækjurnar hér fyrir neðan eða nýtið ykkur valmyndina hér að ofan.
Annars staðar á þessari síðu höfum við birt ljósmyndir af nokkrum bréfum Halldórs.
- „Þegar Halldór sá föður sinn í síðasta sinn“ er bréf sem Halldór skrifaði móður sinni, Sigríði Halldórsdóttur, frá Kaupmannahöfn árið 1919.
- „Langar að skrifa massífa og kólossala íslensku“ er bréf sem Halldór skrifaði Einari Ól. Sveinssyni frá klaustrinu í Clervaux, Lúxemborg árið 1923.
- „Óartikúleraðir undirvitundarþánkar heillar kynslóðar“ er bréf sem Halldór skrifaði Erlendi Guðmundssyni í Unuhúsi úr klaustrinu í Clervaux, Lúxemborg árið 1925.
- „Sigurvagnar Drottins“ er bréf sem Halldór skrifaði fyrri eiginkonu sinni, Ingu, frá Leipzig árið 1931.
- „Hundrað ár á hestbaki“ er bréf sem Halldór skrifaði Jóni Helgasyni, prófessor í Kaupmannahöfn, frá Tíflis í Sovétríkjunum árið 1937.
- „Róm verkar svona á mig“ er umfjöllun og útdráttur úr bréfi Halldórs til seinni eiginkonu sinnar, Auðar, frá Zürich árið 1971.