Opið á Gljúfrasteini

13/03 2022

Nú hækkar sól á lofti og opnunartími Gljúfrasteins lengist eftir því. Safnið er nú opið alla daga milli 10:00 og 16:00 nema mánudaga.

Boðið er upp á hljóðleiðsögn um húsið á íslensku, ensku, dönsku, þýsku og sænsku. Einnig er hægt að fá textaleiðsögn um húsið á frönsku. Þá er tilvalið að fá sér göngu í Mosfellsdalnum en í nágrenninu eru stikaðar gönguleiðir og hægt að fá nánari upplýsingar í afgreiðslu safnsins. Hér má sjá kort af gönguleiðum á svæðinu.