Sjálfstætt fólk á Gljúfrasteini á Degi íslenskrar tungu

12/11 2014

Atli Rafn Sigurðarson

Sunnudaginn 16. nóvember klukkan 16 verður Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur á Gljúfrasteini. Atli Rafn Sigurðarson og Ólafur Egill Egilsson spjalla um bókina, leikgerðina og uppsetningu á Sjálfstæðu fólki eftir Halldór Laxness. Atli Rafn, Ólafur Egill, Símon Birgisson og leikstjóri sýningarinnar Þorleifur Arnar Arnarsson eru höfundar leikgerðar en verkið verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu þann 26. desember.

Sjálfstætt fólk er ein ástsælasta skáldsaga íslenskra bókmennta fyrr og síðar. Það verður fróðlegt að heyra hvernig tekist verður á við þetta magnaða verk Halldórs Laxness, þar sem farið er með okkur í einstakt ferðalag um sögu þjóðarinnar.

Auk þess að vinna leikgerðina ásamt Símoni og Þorleifi Arnari leikur Atli Rafn Bjart í Sumarhúsum og Ólafur Egill er í hlutverki kennarans í sýningunni.

Sjálfstætt fólk var áður á fjölum Þjóðleikhússins árið 1972 í leikgerð og leikstjórn Baldvins Halldórssonar og árið 1999 var  Bjartur -Landnámsmaður Íslands og Ásta Sóllilja -Lífsblómið sýnt í Þjóðleikhúsinu í leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur. Það er því sannarlega kominn tími til að sjá Bjart í Sumarhúsum á sviðinu aftur.

Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir og ókeypis aðgangur.