Sigrún Eðvaldsdóttir flytur Sónötu í a-moll eftir Bach.

29/07 2014

Sigrún Eðvaldsdóttir

Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari kemur fram á næstu stofutónleikum Gljúfrasteins þann 3. ágúst. Hún mun flytja Sónötu í a-moll nr. 2 fyrir einleiksfiðlu eftir Johann Sebastian Bach.

Sigrún Eðvaldsdóttir, konsertmeistari, hóf fiðlunám 5 ára gömul hjá Gígju Jóhannsdóttur en lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1984 undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur og tók Bachelor-gráðu frá Curtis tónlistarháskólanum í Philadelphiu 1988. Hún hefur tekið þátt í fjölda alþjóðlegra fiðlukeppna; varð í öðru sæti í Leopold Mozart keppninni árið 1987, hlaut bronsverðlaun í Síbelíusar keppninni árið 1990 og önnur verðlaun í Carl Flesch keppninni árið 1992. Sama ár hlaut hún bjartsýnisverðlaun Brøste. Hennar er getið sem eins af áhugaverðustu fiðluleikurum framtíðarinnar í bók Henry Roth: Violin Virtuosos from Paganini to the 21st Century. Hún hefur gegnt stöðu 1. konsertmeistara Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 1998 og margoft komið fram sem einleikari með hljómsveitinni. Árið 1998 var Sigrún sæmd Riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu fyrir störf sín á sviði tónlistar. Hún hefur tekið þátt í ýmsum tónlistarhátíðum eins og Marlboro tónlistarhátíðinni í Vermont, L'Emperi hátíðinni í Aix en Provance, Kuhmo hátíðinni í Finnlandi og Sangat hátíðinni í Bombay, Indlandi og síðast RMM hátíðinni þar sem listrænn stjórnandi er Víkingur Ólafsson.
Sigrún var stofnmeðlimur Miami strengjakvartettsins 1998 og hefur haldið tónleika víða um heim m.a. í Weill Recital hall í New York og  Wigmore hall í London og hélt í tónleikaferðalag til Kína árið 2011. Hún lék sem Konsertmeistari hjá Konunglegu dönsku Óperunni á síðasta ári.

 

Stofutónleikarnir eru haldnir hvern sunnudag frá 1. júní til 31. ágúst og hefjast þeir klukkan 16:00. Miðaverð er 1500 krónur.