Laxnesskvöld kirkjukórs Lágafellssóknar miðvikudaginn 29. október kl. 20:00

18/10 2014

Kirkjukór Lágafellssóknar flytur dagskrá helgaða verkum Halldórs Laxness á Laxnesskvöldi Lágafellssóknar.

Laxnesskvöld Kirkjukórs Lágafellssóknar er að festast í sessi sem árviss viðburður í sveitinni.

Þetta er í fjórða skiptið sem Kirkjukórinn stendur fyrir slíku, hið fyrsta var árið 2011 við glimrandi undirtektir Mosfellinga. Þegar opinberaðar voru áætlanir um haustmenningarhátíð í Mosó var því aldeilis upplagt að blása enn til Laxnesskvölds - og í þetta sinn í hátíðarbúningi.

Að venju er mestallt efnið helgað eftirlætisbók organistans, Heimsljósi og kórfélagar lesa viðeigandi aðdraganda söngvanna úr bókinni.  Auk kirkjukórsins koma fram söngvararnir Diddú og Einar Clausen, á fiðlu leikur Matthías Stefánsson og á stokk stíga aðal Laxness-spekúlantar sveitarinnar,Bjarki Bjarnason rithöfundur og Sr Gunnar Kristjánsson prófastur á Reynivöllum.

Bjarki frumflytur erindið Pétur Þríhross og sr Gunnar fjallar um Ólaf Kárason sem jesúgerving í Heimsljósi - en það var efni doktorsritgerðar sr Gunnars.

Í lokin heyrum við sjálft skáldið syngja sína eigin Maístjörnu á sinn einstaka hátt og allir taka svo undir í tango- stemmningu.

Tónleikarnir fara fram í Lágafellskirkju miðvikudaginn 29. október kl. 20, aðgangur er ókeypis og viðburðurinn er styrktur af Mosfellsbæ.