Laxness-veisla á RÚV

15/09 2015

Halldór Laxness með nokkrum samstarfsmönnum og aðstandendum kvikmyndarinnar Sölku Völku. Í fangi skáldsins situr dóttir hans, Sigríður Halldórsdóttir

RÚV sýnir öll helstu kvikmyndaverk byggð á skáldsögum Halldórs Laxness næstu mánuði.

Í desember verða 60 ár liðin frá því að Halldór Laxness hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Af því tilefni sýnir RÚV allar kvikmyndir sem gerðar hafa verið eftir sögum hans. Þar á meðal eru sjaldséðar perlur eins og Brekkukotsannáll, Paradísarheimt, Salka Valka og Atómstöðin. Einnig verða sýndar myndirnar Kristnihald undir jökli og Ungfrúin góða og húsið en allar verða þær sýndar í fyrsta sinn í íslensku sjónvarpi í endurbættum útgáfum, bæði hvað varðar hljóð- og myndgæði.

Myndirnar verða sýndar á sunnudagskvöldum í vetur og er liður í að bjóða upp á leikið íslenskt efni alla sunnudaga í vetur. Myndirnar verða sýndar í aldursröð frá 18. október til 13. desember og er það Salka Valka frá 1954 sem ríður á vaðið.

Í tengslum við myndirnar verða sýndir stuttir þættir með gömlum mynd- og hljóðbrotum þar sem Laxness ræðir um verk sín. Þá verður boðið upp á ýmsa aðra dagskrá tengda Nóbelsskáldinu á meðan veislunni stendur, stakir þættir, stuttmyndir og annað.

Aðrir miðlar RÚV munu einnig taka þátt í að heiðra 60 ára Nóbelsafmæli Laxness með dagskrárgerð og viðburðum sem tengjast nóbelskáldinu á ruv.is og í útvarpinu. Rás 1 hefur frá því í maí boðið upp á lestur skáldsins sjálfs á völdum verkum við afar góðar undirtektir hlustenda. Nú þegar hefur lestur hans á Gerplu og Brekkukotsannáli verið fluttur. Nú stendur yfir lestur á Kristnihaldi undir jökli og að endingu verður fluttur lestur Laxness á Í túninu heima. Í desember er svo gert ráð fyrir að Víðsjá muni bjóða uppá sérstaka dagskrárgerð í tilefni af Nóbelsafmælinu.

Laxness-veisla RÚV:

18/10    Salka Valka

25/10    Brekkukotsannáll (1:2)

1/11       Brekkukotsannáll (2:2)

8/11       Paradísarheimt (1:3)

15/11    Paradísarheimt (2:3)

22/11    Paradísarheimt (3:3)

29/11    Atómstöðin

6/12       Kristnihald undir jökli

13/12    Ungfrúin góða og húsð