Bókmenntahátíð í Reykjavík fagnar 30 ára afmæli sínu í ár

09/09 2015

Bókmenntahátíð i Reykjavík hefst í dag 9.september og stendur til 12. september næstkomandi. Hátíðin fer fram í Norræna húsinu og Iðnó. Frítt er á alla viðburði, nema annað sé tekið fram. Um fjölbreytta dagskrá er að ræða. Nánar um dagskrána.

Íslenskir höfundar sem koma fram í ár eru: Andri Snær Magnason, Bergsveinn Birgisson, Emil Hjörvar Peterssen, Halldóra Kristín Thoroddsen, Jón Gnarr, Kristín Ómarsdóttir, Lilja Sigurðardóttir, Nanna Rögnvaldsdóttir, Oddný Eir Ævarsdóttir, Ófeigur Sigurðsson, Óskar Árni Óskarsson, Steinunn Sigurðardóttir, Þórdís Gísladóttir, Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir, Vilborg Dagbjartsdóttir, Vilborg Davíðsdóttir, Yrsa Sigurðardóttir.

Erlendir höfundar sem koma fram í ár eru: Ana María Shua (Argentína), Danny Wattin (Svíþjóð), Dave Eggers (Bandaríkin), David Mitchell (Bretland), David Nicholls (Bretland), Hassan Blasim (Írak/Finnland), Helle Helle (Danmörk), Katja Kettu (Finnland), Kim Stanley Robinson (Bandaríkin), Lena Andersson (Svíþjóð), Maziar Bahari (Íran), Pierre Lemaítre (Frakkland), Steine Pilgaard (Danmörk), Teju Cole (Bandaríkin), Timur Vermes (Þýskaland).

Nánar á bokmenntahatid.is