Gyrðir, Dagur, Gerður Kristný og Sigurbjörg lesa á sunnudaginn

28/11 2012

Kristín Marja Baldursdóttir, Kristín Ómarsdóttir, Steinunn Sigurðardóttir og Bjarni Gunnarsson sem lásu upp úr bókum sínum á Gljúfrasteini á aðventunni árið 2012.

Fyrsti sunnudagur í aðventu er handan við hornið og ekki seinna vænna að fara að baka, kaupa gjafir, skreyta, skúra, skrúbba og bóna. Það er þó öllum hollt að taka sér hlé öðru hvoru og reyna að njóta aðventunnar þrátt fyrir verkin sem bíða. Þá er tilvalið að kíkja upp á Gljúfrastein á annan jólabókaupplestur vetursins sem haldinn verður á sunnudaginn 2. desember. Skáldin sem lesa þennan sunnudaginn eru að vanda ekki af verri endanum en listann yfir höfundana og bækur þeirra má sjá hérna að neðan. Upplesturinn verður í stofunni á Gljúfrasteini kl. 16.00 og er ókeypis inn. Allir eru velkomnir meðan húsrúm endist.

Gyrðir Elíasson - Suðurglugginn
Dagur Hjartarson - Þar sem vindarnir hvílast
Sigurbjörg Þrastardóttir - Stekk
Gerður Kristný - Strandir

Hér má finna dagskrá upplestranna í heild sinni.